Hvernig geta þeir gagnrýnt bíómynd?

Ég skil ekki alveg fyrirsögnina á þessari frétt. Hvernig ætlar blindur maður að fara að því að gagnrýna eitthvað sem hann ekki sér. Hvað næst, ætla heyrnalausir að fara að gagnrýna tónlist?
mbl.is Blindir gagnrýna nýjustu mynd Julianne Moore
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það verður forvitnilegt að sjá þessa mynd, fyrst hún vekur svona hörð viðbrögð hjá fólki sem getur ekki einu sinni horft á hana xD

Gísli (IP-tala skráð) 2.10.2008 kl. 12:45

2 Smámynd: Sigpungur

Haha segðu. Ég er að spá í að horfa á hana með lokuð augun, kannski hefur hún djúpstæðari áhrif á mig þannig.

Sigpungur, 2.10.2008 kl. 12:46

3 identicon

Því ættu blindir ekki að gagnrýna mynd eins og aðrir eða heyrnarlausir tónlist? Beethoven var heyrnarlaus og það eru ótal listamenn og konur sem að ekki sjá. Helen Keller var blind og heyrnarlaus og ekki stoppaði það hana í að vera margverðlaunaður rithöfundur. Því telur þú að þetta fólk geti ekki gagnrýnt list ef það býr til list?

linda (IP-tala skráð) 2.10.2008 kl. 12:54

4 identicon

Þetta fólk er auðvitað ekki að gagnrýna myndina fyrir hversu slæm eða góð hún sé heldur bara af því að það er viðkvæmt fyrir umfjöllunarefninu..

fólk lætur allt fara illa í sig, eins og þegar fólk vildi sniðganga the two towers lord of the rings myndina vegna þess að hún væri móðgun við þá sem dóu 11/9/2001 :P kanar eru alltaf tilbúnir að taka hlutum á sem verstann hátt :)

Smári Roach Gunnarsson (IP-tala skráð) 2.10.2008 kl. 13:19

5 identicon

Að sjálfsögðu geta blindir gagnrýnt myndina. Helduru að blindir "horfi" aldrei á sjónvarp eða video eða fari í bíó. Heyrnalausir horfa líka á myndir og "hlusta" jafnvel á tónlist. Það er kannski best að kynna sér málin aðeins áður en maður kemur upp um sína eigin fáfræði.

elín (IP-tala skráð) 2.10.2008 kl. 13:24

6 identicon

Ég held að kanar séu ekkert alltaf verstir þegar kemur að svona málum-það heyrist bara hæst í þeim. En mér finnst flott að fá svona myndir inn því það er allt of lítið af þeim sem hristir upp í fólki-margt er orðið svo formúlukennt að maður fær æluna upp í kok.

Svanfríður (IP-tala skráð) 2.10.2008 kl. 13:26

7 Smámynd: Sigpungur

Linda: Vissulega var Beethoven heyrnalaus, en hann hafði jú ansi næmt tóneyra frá því áður en hann varð það. Vissulega geta blindir og heyrnalausir framreitt einhvurslags list, um það er ég ekki að deila. En að þeir séu fullfærir gagnrýnendur er auðvitað útí hött. Ef þeir eiga að vera það verðuru að svara mér þessari einföldu spurningu. Hvernig fara blindir að því að sjá kvikmynd? Þeir gera það einfaldlega ekki, þó svo að þeir skynji hana á einhvern annan hátt.

Elín: Blindir horfa ekki á neitt, þeir eru blindir.Gæsalappir gefa þeim ekki sjón.

Það er kannski best að kynna sér aðeins bloggin og íhuga hversu mikil alvara liggur að baki þeim áður en maður missir sig í að móðgast fyrir hönd annarra.

Sigpungur, 2.10.2008 kl. 13:31

8 identicon

Ég hef margoft farið með blindri manneskju í kvikmyndahús og ég veit vel að sú manneskja er ekki sú eina sjónlausa á þessu landi sem fer í bíó.

Þannig séð er þetta ekkert furðulegt, blindir fara líka í bíó og auðvelt fyrir þá að hafa áhrif á fólk til að sniðganga myndir.

Haukur Guðmundsson (IP-tala skráð) 2.10.2008 kl. 14:20

9 identicon

Þeir láta mest af Ólafi konungi sem hvorki hafa heyrt hann né séð.

Það að ætla að hafa einhvers konar díalóg á jafnréttisgrundvelli þegar viðmælandinn getur ekki kynnt sér viðfangsefnið er hreint út sagt fáránleg hugmynd.

Úlfur (IP-tala skráð) 2.10.2008 kl. 14:59

10 identicon

Ég held að þetta sé nú bara fámennur flokkur af fíflum sem er að grenja yfir þessari mynd. Þetta er skáldskapur og ekki á neinn hátt móðgandi fyrir blinda. Ég er Búinn að sjá trailerinn og mér lýst bara vel á þessa ræmu.

Hér er trailer.

http://www.youtube.com/watch?v=KTivdzpDqP0

Óli (IP-tala skráð) 2.10.2008 kl. 15:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband